Sælar..
Meira en mánuður síðan ég bloggaði seinast, ég er eiginlega orðin of háð myspace þessa dagana að ég hef steingleymt þessu blogcentral...
Jarðaför Þorvaldar var 7 mars. Við bekkurinn hittumst heima hjá Ödda kennara og fórum öll saman í kirkjuna og gátum því öll setið saman.
Rosalega falleg athöfn en alveg rosalega erfitt að kveðja þessa elsku. Páll Rósinkrans söng bæði When I think of angels og Kveðja, alveg rosalega fallegt.
Megi þessi elska hvíla í friði og mun hann vera með okkur um ókomna tíð :*..
Hmmm, þann 11 mars var svo árshátíð dominos, og dróg ég hann robba með mér á þessi ósköp

.. Rosalega fínt alveg, góður matur og góð skemmtiatriði. Reyndar var auglýst að ballið átti að vera fram á rauða nótt... ballið var til 1.. hehe..
Ööööö vá hvað er erfitt að rifja eitthvað svona upp.. er bara ekki frá því að ég sé byrjuð að kalka.
Ég fór ekki á Akureyri seinustu helgi. Var frekar heima á skaganum góða að vinna mér inn penge, ekki veitir af. Ég vil ekki enda eins og blessaða stelpan sem "leikur" sér fyrir framan webcam fyrir moní til þess að borga visa reikningin sinn..hoho...
Hinsvega fór þórey sín á akureyri og við vitum öll hvernig það endaði. En ég vil meina að það hefði ekki komið fyrir hefði ég verið á staðnum og passað þessa elsku

.
Ég er komin með sumar vinnu. Verð að vinna á rannsókn upp í Grundartanga, lýst bara ágætlega á það sko, byrja 16 maí, vúhú.
7 skóladagar eftir af skúlen, úff hvað ég get ekki beðið, verður himneskt að þurfa ekki að mæta í þennan skóla.
Ég er búin að ákveða það að ég ætla ekki í þennan skóla á næstu önn. Eins og flestir vita þá er ég ágætur tossi svona, get ekki setið kjurr tímunum saman og lært og hlustað og tekið eftir. Ég vil frekar fara í einhvern skóla sem ég er virkilega að gera eitthvað.... endilega látið mig vita af einhverjum svoleiðis ef þið vitið um

.
Fáeinir mánuðir í hana Ástu sín, úff hvað verður gott að fá þessa elsku heim, litla ítalan :*

...
Sakna þeirra í Englandi mjöög. Jófríður er sem betur fer svo dugleg að setja inn myndir af þessum ormum

oooo þeir eru svooo sætastir.
Gunna og Halli á Reyn (þar sem ég hef unnið undanfarin sumur) voru að eignast litla prinsessu þann 15 apríl, er að fara að kíkja á mæðgurnar núna á eftir, ooo verður æðislegt
Lokaball næstu helgi og það verður fyrsta skólaballið sem ég hef farið á í heilt ár.. vóóóó....
Þessa helgina ætla ég að taka því rólega.. horfa á lokaþátt bandsins hans bubba í kvöld með þórey og skál af nammi og gotteríi
Svo er ég barasta að fara að loka á dominos annað kvöld...
Ég bara nenni ekki að skrifa meira.
Góða helgi öll sem eitt :*